Áttunda liðið komið í átta liða úrslitin

Berta Rut Harðardóttir skoraði 4 mörk fyrir Hauka.
Berta Rut Harðardóttir skoraði 4 mörk fyrir Hauka. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Haukar urðu í kvöld síðasta liðið til að tryggja sér sæti í átta liða úrslitum bikarkeppni kvenna í handknattleik, Coca Cola-bikarnum, með því að sigra ÍBV á Ásvöllum, 29:25.

Eyjakonur voru yfir í hálfleik, 13:10, en Hafnarfjarðarliðið sneri leiknum sér í hag í seinni hálfleik. Birta Lind Jóhannsdóttir skoraði 10 mörk fyrir Hauka og Guðrún Erla Bjarnadóttir 9 en Ásta Björt Júlíusdóttir skoraði 10 mörk fyrir ÍBV og Sunna Jónsdóttir 6.

Í átta liða úrslitum bikarkeppninnar eru því Fram, KA/Þór, HK, Fjölnir, ÍR, FH, Haukar og Valur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert