13 marka sigur Íslandsmeistaranna á Akureyri

Hergeir Grímsson og félagar hans í liði Selfoss eru komnir …
Hergeir Grímsson og félagar hans í liði Selfoss eru komnir í 8-liða úrslitin í bikarnum. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Íslandsmeistararnir í Selfoss flugu auðveldlega áfram í átta liða úrslitin í Coca-Cola-bikarkeppni karla í handknattleik í kvöld.

Selfyssingar sóttu Þórsara heim í Höllina á Akureyri og unnu þar með 13 marka sigur 39:26 en Þór er í toppsæti Grill 66-deildarinnar.

Brynjar Hólm Grétarsson skoraði 8 mörk fyrir Þór og Heimir Pálsson 7 en hjá Selfyssingum var Hergeir Grímsson markahæstur með 10 mörk og Ísak Gústafsson skoraði 6.

16-liða úrslitunum lýkur annað kvöld en þá mætast:

19.00 ÍR - Mílan
19.30 Stjarnan - HK
19.30 Haukar - Valur
19.30 Grótta - FH

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert