Til að vinna titla þarf að vinna Haukamenn

Andri Sigmarsson Scheving
Andri Sigmarsson Scheving mbl.is/Eggert Jóhannesson

Haukar tryggðu sér sæti í 8-liða úrslitum Coca Cola-bikars karla í handbolta með 30:26-sigri á Val í stórleik sigursælustu bikarliða Íslandssögunnar í gærkvöldi.

Haukar eru enn ósigraðir á toppi Olísdeildarinnar og komnir með farseðilinn í 8-liða úrslit bikarsins þrátt fyrir gríðarlega erfiðan drátt. Ef lið ætla sér að vinna titla á þessu tímabili, þarf að komast í gegnum Hauka fyrst.

Haukar geta helst þakkað markmanninum unga, Andra Sigmarssyni Scheving, en hann fór á kostum og varði 17 skot, þrátt fyrir að byrja á varamannabekknum. Varði hann þrjú víti og er hann orðinn helsti vítabani landsins. 

Nánari umfjöllun um leiki gærkvöldsins er að finna í Morgunblaðinu í dag

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert