Með fullt hús stiga eftir 14 leiki

Aron Pálmarsson og félagar eru með yfirburði á Spáni.
Aron Pálmarsson og félagar eru með yfirburði á Spáni.

Aron Pálmarsson og samherjar hans hjá Barcelona unnu sinn fjórtánda sigur í jafnmörgum leikjum í spænsku 1. deildinni í handbolta í kvöld. Liðið vann þá öruggan 42:25-heimasigur á Benidorm. 

Aron var ekki á meðal markaskorara Barcelona í kvöld, en hann tók tvö misheppnuð skot. Victor Tomas var markahæstur í Barcelona með sjö mörk og Dika Mem gerði fimm. 

Barcelona er með 28 stig í toppsætinu, sex stigum meira en Ademar León sem er í öðru sæti. Þá er liðið í toppsæti A-riðils í Meistaradeild Evrópu með níu sigra og eitt tap í tíu leikjum. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert