Skoraði tíu í Íslendingaslag

Rúnar Kárason var í stuði.
Rúnar Kárason var í stuði. mbl.is/Haraldur Jónasson/Hari

Íslendingaliðin Ribe-Esbjerg og Kolding skiptust á jafnan hlut er þau mættust í dönsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld eftir 26:26-jafntefli. 

Rúnar Kárason var í stuði hjá Ribe-Esbjerg því hann skoraði tíu mörk. Gunnar Steinn Jónsson bætti við tveimur mörkum en Daníel Þór Ingason komst ekki á blað. Hvorki Árni Bragi Eyjólfsson né Ólafur Gústafsson skoruðu fyrir Kolding. 

Ribe Esbjerg er í fimmta sæti deildarinnar með 24 stig á meðan Kolding er í 12. sæti með ellefu stig. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert