Elvar Örn Jónsson skoraði fjögur mörk fyrir Skjern þegar liðið tapaði með níu marka mun fyrir Aalborg í dönsku úrslitakeppninni í handknattleik í Álaborg í kvöld.
Leiknum lauk með 41:32-sigri Aalborg en Anders Eggert var markahæstur í liði Skjern með tíu mörk.
Aalborg leiddi með einu marki í hálfleik, 18:17, en náði fimm marka forskoti þegar tuttugu mínútur voru til leiksloka og lét forystuna aldrei af hendi eftir það.
Aalborg er í öðru sæti 2. riðils úrslitakeppninnar með fjögur stig, stigi minna en Holstebro, en tvö efstu lið riðilsins komast áfram í undanúrslit úrslitakeppninnar.