Daníel með stórleik í sigri

Daníel Freyr Andrésson á landsliðsæfingu í síðasta mánuði.
Daníel Freyr Andrésson á landsliðsæfingu í síðasta mánuði. mbl.is/Kristinn Magnússon

Daníel Freyr Andrésson fór á kostum í marki Guif og átti stóran þátt í því að liðið vann sterkan 35:30 sigur gegn IFK Ystad í sænsku úrvalsdeildinni í handknattleik karla í dag.

Daníel Freyr varði 14 af þeim 40 skotum sem hann fékk á sig, sem er 35 prósent markvarsla.

Aron Dagur Pálsson lék einnig með Guif í dag en komst ekki á blað.

Með sigrinum fer Guif upp í sjöunda sæti deildarinnar, en efstu átta sætin gefa umspilssæti.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert