Markahæst í öruggum sigri

Andrea Jacobsen.
Andrea Jacobsen. mbl.is/Eggert Jóhannesson

EH Álaborg vann AGF örugglega, 29:22 í dönsku B-deildinni í handbolta kvenna í dag.

Andrea Jacobsen átti skínandi fínan leik fyrir Álaborg en hún endaði sem markahæsti leikmaður vallarins með 7 mörk.

Álaborg er með fjögur stig eftir tvær umferðir en AGF er enn án stiga.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert