Bjarki Már markahæstur í stórsigri

Bjarki Már Elísson er kominn af stað með Veszprém.
Bjarki Már Elísson er kominn af stað með Veszprém. Ljósmynd/Szilvia Micheller

Bjarki Már Elísson átti stórleik fyrir Vezprém er liðið fékk Tatabánya í heimsókn í ungversku 1. deildinni í handbolta í dag.

Bjarki var markahæsti maður liðsins og skoraði heil tíu mörk í leiknum úr ellefu marktilraunum.

Vezprém er í öðru sæti deildarinnar með fullt hús stiga eftir þrjá leiki, en þetta var fyrsta tap Tatabánya á tímabilinu sem hefur nú unnið þrjá og tapað einum. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert