Kristján ekki með Aix gegn Val

Kristján Örn Kristjánsson mundar skothöndina gegn Noregi á EM í …
Kristján Örn Kristjánsson mundar skothöndina gegn Noregi á EM í janúar síðastliðinn. Ljósmynd/AFP

Kristján Örn Kristjáns­son, landsliðsmaður í hand­knatt­leik, verður ekki í leikmannahóp franska liðsins Aix þegar það tekur á móti Val í fjórðu umferð B-riðils Evrópudeildarinnar í handknattleik í kvöld.

Kristján, sem leikið hefur með franska liðinu síðan sumarið 2020, staðfesti við handbolta.is í dag að hann taki ekki þátt í leikum í kvöld.

Hann hefur verið meiddur á ökkla síðustu tvær vikur en sagðist vonast til þess að geta tekið þátt í næsta deildarleik Aix á laugardaginn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert