Ellefu íslensk mörk í Svíþjóð

Jóhanna Margrét Sigurðardóttir lék vel með Skara, þrátt fyrir tap.
Jóhanna Margrét Sigurðardóttir lék vel með Skara, þrátt fyrir tap. mbl.is/Kristinn Magnússon

Skara mátti þola naumt tap á heimavelli gegn Önnered í sænsku úrvalsdeildinni í handbolta í dag.

Þrátt fyrir það átti Jóhanna Margrét Sigurðardóttir sinn besta leik hjá Skara til þessa, en hún skoraði sex mörk. Aldís Ásta Heimisdóttir gerði fimm.

Eftir gott gengi þar á undan hefur Skara nú tapað tveimur leikjum í röð. Liðið er í sjöunda sæti deildarinnar með 16 stig eftir 17 leiki.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert