Aron á meðal fjölda meiddra lykilmanna Aalborg

Aron Pálmarsson er meiddur á læri.
Aron Pálmarsson er meiddur á læri. mbl.is/Kristinn Magnússon

Dönsku liðin Aalborg og GOG mætast í fyrri leik sínum í 1. umferð útsláttarkeppni Meistaradeildar Evrópu í handknattleik karla í kvöld.

Skakkaföllin hjá heimamönnum í Aalborg eru með nokkrum ólíkindum þar sem alls sex stórir póstar hjá liðinu geta ekki tekið þátt í stórleik kvöldsins.

Þetta eru Aron Pálmarsson, fyrirliði íslenska landsliðsins,sem er að glíma við meiðsli á læri, stórstjarnan Mikkel Hansen, Martin Larsen og sænsku landsliðsmennirnir Felix Claar, Lukas Sandell og Jesper Nielsen.

Í leik kvöldsins þarf Aalborg því að leita til leikmanna í unglingaliði sínu til þess að eiga í 16-manna hóp.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert