Afturelding er komin upp

Leikmenn Aftureldingar fagna áfanganum.
Leikmenn Aftureldingar fagna áfanganum. mbl.is/Óttar Geirsson

Sylvía Björt Blöndal var mögnuð er Afturelding tryggði sér sæti í úrvalsdeild kvenna í handknattleik með tíu marka útsigri á FH, 40:30, í dag. 

Mosfellingar fóru að ná góðri forystu undir lok fyrri hálfleiksins og eftir það var sigurinn aldrei í hættu. 

Sylvía Björt skoraði heil 14 mörk fyrir Aftureldingu en Katrín Helga Davíðsdóttir var næstmarkahæst fyrir Mosfellinga með sex mörk. Hildur Guðjónsdóttir var markahæst í liði FH með níu stykki. 

Afturelding er nú komin upp í efstu deild á nýjan leik er ein umferð er eftir af tímabilinu. 

Sylvía Björt Blöndal skýtur að marki FH en hún skoraði …
Sylvía Björt Blöndal skýtur að marki FH en hún skoraði 14 mörk í dag. mbl.is/Óttar Geirsson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert