Andrea og Álaborg í umspil um sæti í úrvalsdeild

Andrea Jacobsen á æfingu með íslenska landsliðinu.
Andrea Jacobsen á æfingu með íslenska landsliðinu. mbl.is/Kristinn Magnússon

Andrea Jacobsen skoraði þrjú mörk í góðum heimasigri EH Álaborg á Hellerup, 33:17, í lokaumferð dönsku B-deildarinnar í handbolta í dag.

Álaborg hafnaði í öðru sæti deildarinnar og mun spila við Holstebro um sæti í úrvalsdeildinni. Bjerringbro laumaði sér fram úr Álaborg á lokasprettinum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert