Olil Amble og Álfaklettur sigurvegarar í fimmgangi

Olil Amble og Álfaklettur í Samskipahöllinni í gærkvöld.
Olil Amble og Álfaklettur í Samskipahöllinni í gærkvöld.

Keppni í fimmgangi F1 í Meistaradeild Líflands í hestaíþróttum fór fram í Samskipahöllinni í gærkvöld. Nýjar sóttvarnarreglur gáfu leyfi fyrir 200 áhorfendum í sal sem skapaði skemmtilega stemningu.

Eins og í fyrri keppnum var sýnt frá henni í beinni útsendingu á RÚV2 og streymt var til erlendra áhorfenda á AlendisTV.

Mjótt var á munum í forkeppni eins og við var að búast enda um sannkallaða veislu að ræða. Munurinn var einungis 0,13 á fyrsta og þriðja sæti þar sem að fremst fóru Olil Amble og Álfaklettur frá Syðri-Gegnishólum með einkunnina 7,4. Fast á hæla henni komu fyrrverandi Landsmótssigurvegarar í fimmgangi þau Eyrún Ýr Pálsdóttir og Hrannar frá Flugumýri með einkunnina 7,33 og þriðju voru þau Árni Björn og Katla frá Hemlu II með einkunnina 7,27.

Eftir harða baráttu í úrslitum urðu Olil Amble og hestur hennar Álfaklettur efst. Tvísýnt var á tímabili um hvernig leikar færu en eftir skeiðið enduðu þau sem sigurvegarar í úrslitum með einkunnina 7,36. Í öðru sæti urðu þau Árni Björn Pálsson og Katla frá Hemlu II með einkunnina 7,33 og í því þriðja höfnuðu Eyrún Ýr Pálsdóttir og Hrannar frá Flugumýri II með einkunnina 7,19.

Lið Hestvits/Árbakka hlaut liðaplatt­ann en liðið var með tvo knapa í A-úr­slit­um, þá Gústaf Ásgeir Hinriksson og Hinrik Bragason. Liðið stendur einnig efst í liðakeppninni með 158 stig.

Efst­ir í ein­stak­lingskeppn­inni eru þeir  Jakob Svavar Sigurðsson úr liði Hjarðartúns ásamt Árna Birni Pálssyni úr liði Top Reiter með 25 stig. Í öðru sæti er Jóhanna Margrét Snorradóttir úr liði Hestvits/Árbakka með 15,33 stig.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert