Vítaspyrna Vlaar fór mögulega inn

Vlaar að framkvæma vítið umtalaða.
Vlaar að framkvæma vítið umtalaða. AFP

Breska dagblaðið The Guardian varpar fram afar áhugaverðri frétt þess efnis að fyrsta víti Hollendinga í vítaspyrnukeppni þeirra gegn Argentínumönnum hafi á endanum ratað inn fyrir línuna en varnarmaðurinn sterki Ron Vlaar tók spyrnuna.

Markvörður Argentínumanna, Sergio Romero varði spyrnuna vel en beint á eftir sést boltinn greinilega skoppa með snúningi aftur í átt að markinu og líklega fór hann allur inn fyrir marklínuna. Marklínutæknin var þó hins vegar ekki notuð.

Vlaar sést á neðra myndbandinu benda dómara leiksins, Cuneyt Cakir á það sem hafði gerst en dómnum var ekki snúið, spyrnan var varin.

mbl.is

Bloggað um fréttina

  • Engin mynd til af bloggara Óli Már Guðmundsson: Mark
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert