Messi búinn að eiga það erfitt

Lionel Messi gengur daufur af velli efti leikinn við Íslendinga.
Lionel Messi gengur daufur af velli efti leikinn við Íslendinga. AFP

Heyrst hefur úr herbúðum argentínska landsliðsins í knattspyrnu að fyrirliðinn Lionel Messi hafi átti erfitt með að jafna sig eftir að Hannes Þór Halldórsson varði vítaspyrnu frá honum í leik Argentínu og Íslands á HM í Moskvu á laugardaginn.

„Hann er mjög daufur og talar lítið sem ekki neitt,“ sagði ónefndur heimildamaður úr herbúðum Argentínumanna við fjölmiðla. Messi fékk gullið tækifæri til að koma sínum mönnum yfir um miðjan seinni hálfleik en Hannes Þór sá við honum og varði glæsilega.

Argentínumenn vonast til þess að koma Antonella Roccuzzo eiginkonu Messi til Rússlands muni létta honum lundina en hún er væntanleg til Nizhny Novograd á fimmtudaginn þar sem Argentínumenn mæta Króötum í riðli okkar Íslendinga á fimmtudagskvöldið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert