Ef þetta er draumur, ekki vekja okkur

Rússar eru í sjöunda himni en eftir 3:1 sigur Rússa gegn Egyptum eru þeir komnir áfram i 16-liða úrslitum á HM, fyrstir allra liða.

Fjölmiðlar í Rússlandi halda ekki vatni yfir frammistöðu rússneska liðsins sem hefur unnið báða leiki sína á mótinu og eru með markatöluna, 8:1.

„Öll þjóðin er ástfangin af liði sínu. Ef þetta er draumur, ekki vekja okkur. Við viljum sjá úrslitaleikinn,“ segir í frétt í rússneska blaðinu Komsomolskaya Pravda.

„Besta í sögunni er að rússneska liðið sýndi frammúrskarandi fótbolta og gerði alla þjóðina hamingjusama,“ segir í frétt í blaðinu Izvestia.

Roman Zobnin og Artem Dzyuba fagna marki gegn Egyptum í …
Roman Zobnin og Artem Dzyuba fagna marki gegn Egyptum í gær. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert