„Messi er ótrúlegur leikmaður en hann getur ekki gert þetta einn,“ sagði Luka Modrić, fyrirliði króatíska landsliðsins í knattspyrnu, eftir 3:0 sigur liðsins gegn Argentínu í annarri umferð D-riðils heimsmeistaramótsins í Nishnij Novgorod í kvöld.
Króatar unnu þægilegan 3:0 sigur með mörkum frá þeim Ante Rebić, Luka Modrić og Ivan Rakitić og eru þeir komnir áfram í sextán liða úrslit keppninnar. Lionel Messi, fyrirliði argentínska landsliðsins, hafði hægt um sig í leiknum í kvöld og fékk úr litlu að moða enda hans lið undir á öllum sviðum leiksins.
„Knattspyrna er liðsíþrótt og þú þarft hjálp frá liðsfélögunum líka. Sama hversu góður leikmaður þú ert. Við gerðum vel í að loka á hann fannst mér. Þeir fengu ekki mikið svæði til þess að spila í og Messi hafði lítið pláss til þess að vinna með. Við lokuðum vel á allar sendingar á hann og þegar við komumst í takt við leikinn stjórnuðum við honum frá A til Ö,“ sagði Modrić að lokum.