Íslenska karlalandsliðið í knattspyrnu fær gott tækifæri til að stíga stórt skref í átt að sextán liða úrslitum heimsmeistaramóts karla í knattspyrnu þegar það mætir Nígeríu á söguslóðum í Volgograd klukkan 15 í dag, að íslenskum tíma.
Eftir stórsigur Króata á Argentínumönnum í gær liggur fyrir að annaðhvort Ísland eða Nígería verður í öðru sæti D-riðils að leik loknum í dag, og í góðri stöðu til að komast áfram í keppninni.
Um þrjú þúsund Íslendingar verða á leiknum og í þeirra hópi er Evgenía Mikaelsdóttir sem er komin til Volgograd í fyrsta skipti en þar féll afi hennar í síðari heimsstyrjöldinni. Orrustan um Stalíngrad, sem stóð í fimm mánuði frá því haustið 1942 þar til í febrúar 1943, er talinn einn mesti hildarleikur sögunnar. Evgenía fékk endanlega staðfest í gær að borin hefðu verið kennsl á afa hennar á sínum tíma, þegar hún sá að nafn hans er grafið á vegg í hvelfingu við stærstu styttu í Evrópu, Móðurlandið kallar, sem er steinsnar frá knattspyrnuvellinum í borginni, að því er fram kemur í viðtali við Evgeníu í Morgunblaðinu í dag.
Eggert Jóhannesson og Skapti Hallgrímsson voru á ferð með myndavélarnar í Volgograd í gær.
Íslenskir áhorfendur á stuðningsmannasvæðinu í Volgograd í gærkvöldi.
mbl.is/Eggert
Íslensku leikmennirnir á æfingu á keppnisvellinum í gærmorgun.
mbl.is/Eggert
Íslenska landsliðið á æfingu á keppnisvellinum, Volgograd Arena, í gærmorgun.
mbl.is/Skapti Hallgrímsson
Verðir, í hvelfingunni þar sem nöfn allra þeirra Sovétmanna sem fórust í orrustunni um Stalíngrad og hægt var að bera kennsl á er að finna, standa grafkyrrir langa stund á milli vaktaskipta – sumir í steikjandi hita þar sem sólin skín inn. Vaktstjóri þurrkar reglulega af þeim svitann.
mbl.is/Skapti Hallgrímsson
Íslenskir stuðningsmenn með Nígeríumönnum á stuðningsmannasvæðinu í Volgograd í gærkvöldi.
mbl.is/Eggert
Evgenía Mikaelsdóttir, Gunnar Bjarni Ragnarsson og synir þeirra, Leifur til vinstri og Arnar til hægri, í gær við minnismerkið Móðurlandið kallar.
mbl.is/Skapti Hallgrímsson
Íslenskir áhorfendur fylgjast með leik Króatíu og Argentínu á risaskjá, á stuðningsmannasvæðinu í Volgograd í gærkvöldi.
mbl.is/Eggert
Íslenskir áhorfendur með Nígeríumönnum á stuðningsmannasvæðinu í Volgograd í gærkvöldi.
mbl.is/Eggert
Minnismerkið risavaxna og tignarlega, Móðurlandið kallar. Stærsta stytta í Evrópu og sú stæsta af konu í veröldinni. Þota á óljósri leið á himni.
mbl.is/Skapti Hallgrímsson
Íslenska landsliðið á æfingu á keppnisvellinum, Volgograd Arena, í gærmorgun.
mbl.is/Skapti Hallgrímsson
Verðir, í hvelfingunni þar sem nöfn allra þeirra Sovétmanna sem fórust í orrustunni um Stalíngrad og hægt var að bera kennsl á er að finna, standa grafkyrrir langa stund á milli vaktaskipta – sumir í steikjandi hita þar sem sólin skín inn.
mbl.is/Skapti Hallgrímsson
Íslenskir stuðningsmenn í Volgograd í gær.
mbl.is/Eggert
Minnismerkið tignarlega, Móðurlandið kallar.
mbl.is/Skapti Hallgrímsson
Hinn eilífi eldur í hvelfingunni, þar sem nöfn þeirra sem féllu í orrustunni um Stalíngrad veturinn 1942 til 1943, og hægt var að bera kennsl á, eru grafin á vegginn.
mbl.is/Skapti Hallgrímsson
Starfsmenn landsliðsins fóru í göngutúr í gær og skoðuðu minningargarðinn þar sem styttan stóra er, Móðurlandið kallar, steinsnar frá keppnisvellinum og hóteli landsliðsins. Frá vinstri: Þorgrímur Þráinsson, Helgi Kolviðsson, Guðmundur Hreiðarsson og Sebastian Boxleitner.
mbl.is/Skapti Hallgrímsson
Evgenía Mikaelsdóttir skimar eftir nafni afa síns á vegg hvelfingarinnar í minningargarðinum. Til vinstri er eiginmaður hennar, Gunnar Bjarni Ragnarsson og sonurinn Leifur til hægri.
mbl.is/Skapti Hallgrímsson
Hvelfingin, þar sem eru nöfn þeirra sem létustu í orrustunni um Stalíngrad, og hægt var að bera kennsl á.
mbl.is/Skapti Hallgrímsson
Hjónin Evgenía Mikaelsdóttir og Gunnar Bjarni Ragnarsson stundarkorni áður en hún fann nafn afa síns, sem lést í orrustunni um Stalíngrad, á vegg í minningarhvelfingunni.
mbl.is/Skapti Hallgrímsson
Íslenskir áhorfendur fylgjast með leik Króatíu og Argentínu á risaskjá, á stuðningsmannasvæðinu í Volgograd í gærkvöldi.
mbl.is/Eggert
Vaktaskipti hjá vörðum í minningarhvelfingunni.
mbl.is/Skapti Hallgrímsson
Íslenskir stuðningsmenn í miklu stuði í Volgograd í gær.
mbl.is/Eggert
Íslenska landsliðið á æfingu á keppnisvellinum, Volgograd Arena, í gærmorgun.
mbl.is/Skapti Hallgrímsson
Íslenskir stuðningsmenn á stuðningsmannasvæðinu í Volgograd í gær.
mbl.is/Eggert
Íslenskir áhorfendur fylgjast með leik Króatíu og Argentínu á risaskjá, á stuðningsmannasvæðinu í Volgograd í gærkvöldi.
mbl.is/Eggert
Íslendingar fylgjast með leik Króatíu og Argentínu á risaskjá, á stuðningsmannasvæðinu í Volgograd í gærkvöldi.
mbl.is/Eggert
Íslendingar og Nígeríumenn skemmtu sér vel á stuðningsmannasvæðinu í Volgograd í gærkvöldi.
mbl.is/Eggert
Jóhann Berg Guðmundsson fylgist með félögum sínum á æfingunni í gærmorgun. Nær engar líkur eru á að Jóhann spili í dag, vegna meiðslanna sem hann varð fyrir gegn Argentínu. Helgi Kolviðsson, aðstoðarlandsliðsþjálfari, til hægri.
mbl.is/Skapti Hallgrímsson
Íslenskir stuðningsmenn í miklu stuði í Volgograd í gær.
mbl.is/Eggert
Íslenskir stuðningsmenn í Volgograd í gær.
mbl.is/Eggert
Alfreð Finnbogason á æfingunni í gærmorgun.
mbl.is/Eggert
Íslenska landsliðið á æfingunni í gærmorgun.
mbl.is/Eggert
Hólmar Örn Eyjólfsson á æfingunni í gærmorgun.
mbl.is/Eggert
Guðmundur Kári Skúlason, sem er í Volgograd, spáir Íslandi 2:0 sigri í kvöld, í Morgunblaðinu í dag. „Við spilum
mjög vel sem liðsheild og
strákarnir eru alveg með
þetta í blóðinu.“
mbl.is/Eggert
Í Morgunblaðinu í dag spáir Jason Már Bergsteinsson 2:0 sigri Íslands í kvöld. Segir Nígeríumenn verða að vinna í ljósi fyrri úrslita, „það hentar okkur að bíða aftarlega á vellinum og sækja hratt. Svo eru þeir slakir í að verjast föstum leikatriðum og við nýtum okkur byssurnar á fyrirliðanum.“
mbl.is/Eggert
Íslensku leikmennirnir á æfingu á keppnisvellinum í gærmorgun.
mbl.is/Eggert
Hólmfríður Tryggvadóttir á stuðningsmannasvæðinju í gærkvöldi. Hún spáði Nígeríumönnum 2:1 sigri í Morgunblaðinu í dag. „Þessir gaurar í
nígeríska liðinu hlaupa alltaf
í 40 stiga hita en ekki við.
Við erum vanari 6 stigum.“
mbl.is/Eggert
Íslensku leikmennirnir á æfingu á keppnisvellinum í gærmorgun.
mbl.is/Eggert
Verslunarmiðstöð í miðborg Volgograd upplýst í fyrrakvöld. Mynd af fótbolta færðist eftir upplýstum veggnum með reglulegu millibili.
mbl.is/Skapti Hallgrímsson