Fjórar þjóðir komnar áfram á HM

Dejan Lovren og félagar hans í króatíska landsliðinu eru komnir …
Dejan Lovren og félagar hans í króatíska landsliðinu eru komnir í 16-liða úrslitin. AFP

Fjórar þjóðir eru búnar að tryggja sér þátttökurétt í 16-liða úrslitunum á HM í knattspyrnu í Rússlandi.

Búið er leika tvær umferðir í fimm riðlum af átta í keppninni og þjóðirnar sem eru öruggar áfram í 16-liða úrslitin eru:

Rússland, Úrúgvæ, Frakkland og Króatía.

Fimm þjóðir eiga ekki möguleika á að komast í 16-liða úrslitin en það eru:

Egyptaland, Sádi-Arabía, Marokkó, Perú og Kostaríka.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert