Nígerískir lögreglumenn tala íslensku

Nígerísku lögreglumennirnir voru áhugasamir um að læra íslensku.
Nígerísku lögreglumennirnir voru áhugasamir um að læra íslensku.

Íslenskir lögreglumenn eru meðal þeirra sem fylgt hafa landsliðinu okkar til Rússlands á HM. Þeir hafa unnið með lögreglumönnum þeirra landa sem Íslendingar hafa att kappi við og kennt þeim íslensku. Að minnsta kosti eitt orð.

Á síðu Ríkislögreglustjóra á Facebook var í morgun birt myndskeið af nígerískum lögreglumönnum sem fengu að spreyta sig í íslenskunni. Orðið sem þeim var uppálagt að læra var vitanlega „lögreglan“.



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert