Hættur með Brasilíu eftir áfallið í kvöld

Tite stýrði Brasilíu í síðasta skipti í kvöld.
Tite stýrði Brasilíu í síðasta skipti í kvöld. AFP/Anne-Christine Poujoulat

Tite hefur sagt starfi sínu sem landsliðsþjálfari karlaliðs Brasilíu í fótbolta lausu, eftir tapið gegn Króatíu í vítakeppni í átta liða úrslitum á HM í Katar í kvöld.

Þjálfarinn tilkynnti brasilískum fjölmiðlum tíðindin strax eftir leikinn. Tite tók við brasilíska liðinu árið 2016.

Undir stjórn Tite féll Brasilía úr leik í átta liða úrslitum á tveimur heimsmeistaramótum en varð Suður-Ameríkumeistari einu sinni.  

Rétt eins og í Katar í ár, féll Brasilía úr leik í átta liða úrslitum á HM í Rússlandi fyrir fjórum árum. Þá tapaði liðið úrslitaleik gegn Argentíu á heimavelli á Suður-Ameríkumótinu á síðasta ári. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert