Það gengur á ýmsu á línunni þegar leikmenn eru að kljást í handboltaleik og í myndskeiðinu með þessari frétt sýnir Króatinn Igor Vori ansi furðulega takta þegar hann á í höggi við línumanninn Thiagus Petrus.
Atvikið átti sér stað í viðureign Króata og Brasilíumanna í 16-liða úrslitunum á HM í Katar í gær þar sem Króatar unnu nauman sigur, 26:25.