Staða Íslands á heimsmeistaramótinu í handknattleik var hársbreidd frá því að verða svartari, en jöfnunarmark Slóveníu gegn Túnis, 28:28, bjargaði málunum fyrir horn. Íslandi dugar ekkert minna en sigrar í báðum leikjum sínum sem eftir eru.
Slóvenar voru yfir í hálfleik, 15:13, en Slóvenar náðu góðum kafla í upphafi síðari hálfleiks og skoruðu meðal annars sex mörk gegn einu. Þegar síðari hálfleikur var hálfnaður var Túnis með þriggja marka forskot, 24:21.
Þar með voru Túnisbúar komnir með blóð á tennurnar, en lokakaflinn var þeim erfiður. Slóvenar bitu frá sér undir lokin og minnkuðu forskotið niður í eitt mark þegar rúm mínúta var eftir. Fimm sekúndum fyrir leikslok náðu þeir svo að jafna, lokatölur 28:28.
Alls skoruðu Slóvenar fimm síðustu mörkin, á meðan Túnis skoraði ekki síðustu sex mínúturnar. Mosbah Sanai fór sem fyrr fyrir liði Túnis, en hann skoraði átta mörk. Hjá Slóvenum var Vid Kavticnik atkvæðamestur með sjö mörk.
Ísland verður að vinna báða leiki sína, gegn Angóla og Makedóníu, til þess að komast örugglega áfram. Þar sem leikur Íslands og Túnis á sunnudaginn endaði með jafntefli getur sú staða hæglega komið upp að liðin verði jöfn að stigum þegar upp verður staðið í riðlinum. Bæði með þrjú, fjögur eða fimm stig.
Í því tilfelli myndi markatala liðanna ráða hvort þeirra yrði ofar og það gæti um leið ráðið úrslitum um hvort þeirra kemst í 16 liða úrslit, eða hvort þeirra myndi ná þriðja sæti riðilsins.
Makedónía er hins vegar öruggt með sæti í 16-liða úrslitum, þar sem Túnis getur mest náð í 4 stig og jafnað Makedóníu, sem hafði þó betur í innbyrðis viðureignum. Baráttan er því á milli Íslands og Túnis.