Óvissa með þátttöku Janusar

Janus Daði Smárason sækir að vörn Slóvena á HM.
Janus Daði Smárason sækir að vörn Slóvena á HM. AFP

Óvissa ríkir um þátttöku Janusar Daða Smárasonar með íslenska landsliðinu í leiknum gegn Angóla á HM í kvöld vegna meiðsla sem hann glímir við í hné. RÚV greinir frá þessu.

Janus Daði fékk högg á hnéð í leiknum gegn Túnisum og í kjölfarið safnaðist vökvi fyrir í hnénu.

Geir Sveinsson landsliðsþjálfari sagði við RÚV að svo geti farið að Janus taki ekkert þátt í leiknum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert