Heimsmeistarar Frakka hafa bætt tveimur nýjum leikmönnum inn í hóp sinn fyrir leikinn gegn Rússum í lokaumferð riðlakeppni heimsmeistaramótsins í handknattleik.
Við greindum frá því hér á mbl.is í gær að Nikola Karabatic, einn besti handboltamaður heims undanfarin ár, er kominn inn í hópinn í stað Cedric Sorhaindo sem er úr leik á HM vegna meiðsla.
Leikstjórnandinn Melvyn Richardson tekur sæti Nicolas Clarie að því er fram kemur á heimasíðu franska handknattleikssambandsins.
Richardson er 21 árs gamall og spilar með franska liðinu Montpellier. Hann er sonur goðsagnarinnar Jackson Richardson sem gerði garðinn frægan með franska landsliðinu frá 1990-2005. Hann varð heimsmeistari með Frökkum á Íslandi 1995 og aftur 2001. Richardson lék 417 leiki með franska landsliðinu og skoraði í þeim 775 mörk.