Svíþjóð, undir stjórn Kristján Andréssonar, er búið að vinna alla fimm leiki sína á heimsmeistaramóti karla í handbolta. Lærisveinar Kristjáns unnu öruggan 35:23-sigur á Túnis í Herning í dag og komst fyrir vikið í toppsæti milliriðils 2.
Jafnræði var með liðunum framan af og var staðan 8:8 um miðbik fyrri hálfleiks. Svíar voru hins vegar sterkari síðari hluta hálfleiksins og var staðan í leikhléi 19:14 og var Túnis ekki líklegt til að jafna í seinni hálfleik.
Niclas Ekberg og Andreas Nilsson skoruðu báðir sjö mörk úr sjö skotum hjá Svíum og Mosbah Sanai skoraði sex fyrir Túnis. Danir geta jafnað Svía á toppi riðilsins með sigri á Ungverjum síðar í kvöld.
Frakkar skelltu sér á toppinn í milliriðli 1, riðli Íslands, með 33:30-sigri á Spánverjum í hörkuleik í Köln. Frakkar lögðu gruninn að sigrinum með góðri byrjun í seinni hálfleik og var munurinn fimm mörk, 30:25, þegar skammt var eftir.
Dika Mem og Ludovic Fabregas skoruðu sex mörk hvor fyrir Frakka og Ferrán Solé skoraði ellefu mörk fyrir Spánverja. Frakkar er með fimm stig og á toppi riðilsins og þar á eftir koma Króatar með fjögur stig og Þýskaland með þrjú.