Vill meina að ég hafi grenjað allan tímann

Ýmir Örn Gíslason.
Ýmir Örn Gíslason. mbl.is/Kristinn Magnússon

„Ég held að ég hafi byrjað í fótbolta fimm ára,“ sagði Ýmir Örn Gíslason, leikmaður íslenska karlalandsliðsins í handknattleik, í Sonum Íslands, vefþætti mbl.is.

Ýmir Örn, sem er 25 ára gamall, er uppalinn hjá Val á Hlíðarenda og lék með félaginu allan sinn feril áður en hann hélt út í atvinnumennsku árið 2020.

„Mamma dró mig á einhverja æfingu og hún vill meina að ég hafi grenjað allan timann sem ég held að sé kjaftæði,“ sagði Ýmir.

„Fyrsta handboltaæfingin mín var í Hlíðarskóla held ég, í litlu íþróttahúsi, og mér fannst það geggjað og ég hélt áfram,“ bætti Ýmir við.

Ýmir Örn er í aðalhlutverki í fjórða þætti af Sonum Íslands en hægt er að horfa á þátt­inn í heild sinni með því að smella á hlekk­inn hér fyr­ir ofan eða inn á heimasíðu þáttanna sem má nálgast hér.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert