Björninn skoraði sjö gegn SR

Björninn hafði ástæðu til að fagna í kvöld.
Björninn hafði ástæðu til að fagna í kvöld. mbl.is/Golli

Björninn átti ekki í neinum vandræðum með sigurlaust lið SR þegar liðin mættust á svellinu í Hertz-deild kvenna í íshokkíi í kvöld. Lokatölur voru 7:0 fyrir Birninum, en þetta var annar sigur liðsins í vetur.

Björninn byrjaði rólega og var 1:0 yfir eftir fyrsta hluta, en skoraði þrjú mörk í öðrum leikhluta. Aftur skoraði liðið þrjú mörk í þriðja og síðasta hlutanum og öruggur 7:0 sigur staðreynd.

Þær Védís Valdemarsdóttir og Karen Þórisdóttir sáu um markaskorunina, en Védís skoraði fjögur mörk og Karen þrjú.

Björninn er nú með sjö stig í þriðja sæti, en SR er á botninum með tvö.

Mörk/stoðsendingar Bjarnarins:

Védís Valdemarsdóttir 4/0
Karen Þórisdóttir 3/0
Kristín Ingadóttir 0/3
Harpa Benediktsdóttir 0/1
Lísa Ólafsdóttir 0/1
Vigdís Hrannardóttir 0/1

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert