Ísland kláraði HM með glæsibrag

Liðsmynd af íslenska liðinu sem tók þátt í HM á …
Liðsmynd af íslenska liðinu sem tók þátt í HM á Nýja-Sjálandi. Ljósmynd/ihi.is

Íslenska U-20 ára landsliðið í íshokkí karla vann 10:0-stórsigur gegn Nýja-Sjálandi í leik um þriðja sætið í 3. deild heimsmeistaramótsins sem fram fór í Nýja-Sjálandi. Ísland hafnaði því í þriðja sæti mótsins og getur vel við unað. 

Gabriel Camilo Gunnlaugsson Sarabia skoraði tvö mörk fyrir íslenska liðið og Hjalti Jóhannsson, Jón Árni Árnason, Hafþór Sigrúnarson, Edmunds Induss, Elvar Ólafsson, Kristján Albert Kristinsson, Sigurður Þorsteinsson og Heiðar Örn Kristveigarson sitt markið hver. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert