SA Víkingur bar sigurorð af Skautafélagi Reykjavíkur, 8:4, þegar liðin áttust við í Hertz-deild karla í íshokkí í Skautahöllinni í Laugardal í kvöld.
SA Víkingur var 1:0 yfir eftir fyrstu lotuna. Í þeirri annarri hafði SA Víkingur betur 2:1 og í þeirri þriðju, 5:3.