Stórsigur SA á Akureyri

Andri Már Mikaelsson skorar gegn SR.
Andri Már Mikaelsson skorar gegn SR. Ljósmynd/Þórir Ó. Tryggvason

SA Víkingar unnu 11:3-stórsigur á SR í Hertz-deild karla í íshokkí í Skautahöll Akureyrar í dag. Daníel Magnússon kom SR yfir með eina marki 1. leikhluta en SA var komið í 5:2 eftir 2. leikhluta. 

Heimamenn bættu svo við sex mörkum í síðasta leikhlutanum og stórsigur SA varð staðreynd. Jussi Sipponen skoraði þrjú mörk fyrir SA, Bart Moran, Björn Jakobsson og Jóhann Leifsson skoruðu tvö og þeir Sigurður Sigurðsson Andri Mikaelsson skoruðu eitt mark hvor. Daníel Magnússon, Miloslav Racansky og Viktor Svavarsson skoruðu mörk SR. 

SA hefur unnið tvo af fyrstu þremur leikjum sínum en SR hefur tapað öllum þremur leikjum sínum til þessa. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert