Rússland og Þýskaland leika til úrslita

Það var hart barist hjá Rússum og Tékkum.
Það var hart barist hjá Rússum og Tékkum. AFP

Kanada ver ekki ólympíutitil sinn í íshokkí karla eftir 4:3-tap fyrir Þjóðverjum í undanúrslitum á Vetr­arólymp­íu­leik­un­um í Pyeongchang í Suður-Kór­eu í dag. Þjóðverjar komust í 3:0 og 4:1, en þrátt fyrir það voru lokamínúturnar æsispennandi. Kanada tókst hins vegar ekki að jafna og leikur Þýskaland því til úrslita. 

Í hinum undanúrslitunum hafði Rússland öruggan 3:0-sigur á Tékkum. Staðan eftir 1. leikhluta var markalaus en Rússar bættu við tveimur mörkum í 2. leikhluta og ráku svo smiðshöggið með þriðja markinu í 3. leikhluta. Úrslitaleikurinn fer fram aðfaranótt sunnudags. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert