[ Fara í meginmál | Forsíða | Veftré ]
mobile Fyrir farsíma | RSS þjónusta RSS | Podcast Podcast | Minnka letur Stærð Stækka letur

Nýtt á mbl.is

Íþróttablogg

skak.is

Skák.is | 18.3.2010
Morgunblaðið: Þá er það heimsfrétt! 
Skák.is *Margt ber fyrir augu og eyru þegar rölt er milli taflborða á skákmóti *Mikið er spáð og spekúlerað og jafnvel vitnað í vísur fyrri móta Grein eftir Pétur Blöndal sem birtist í Morgunblaðinu 3. mars og birt hér með leyfi höfundar. Einnig fylgja með… Meira

Staða - Úrslit

Ísland
Önnur lönd
N1 deild karla Akureyri-FH Iceland Express deild karla Snæfell-KR
Kobe Bryant með boltann í leiknum í nótt en Bruce Bowen hefur gætur á honum.

Kobe Bryant með boltann í leiknum í nótt en Bruce Bowen hefur gætur á honum. Reuters

Íþróttir | mbl.is | 28.5.2008 | 07:19

Lakers með pálmann í höndunum

Los Angeles Lakers er komið í 3:1 í einvíginu við meistara San Antonio í úrslitum Vesturdeildar NBA-deildarinnar í körfuknattleik eftir mikilvægan sigur, 93:91, í fjórða leik liðanna sem fram fór í San Antonio í nótt.

Lakers fær því tækifæri á heimavelli til að gera út um einvígið aðfaranótt föstudags en meistararnir töpuðu þarna í fyrsta skipti á heimavelli sínum í úrslitakeppninni.

Kobe Bryant var að vanda í stóru hlutverki hjá Lakers, skoraði 28 stig og tók 10 fráköst, og Lamar Odom skoraði 16 stig.

Tim Duncan skoraði 29 stig fyrir San Antonio og tók 17 fráköst. Brent Barry skoraði 23 stig og hann átti 3ja stiga skot um leið og lokaflautið gall. Það geigaði, Barry mótmælti og taldi að Derek Fisher hefði brotið á sér en ekkert var dæmt.

San Antonio: Tim Duncan 29, Brent Barry 23, Tony Parker 23, Bruce Bowen 7, Manu Ginobili 7, Robert Horry 2.
LA Lakers: Kobe Bryant 28, Lamar Odom 16, Vladimir Radmanovic 11, Pau Gasol 10, Derek Fisher 9, Luke Walton 9, Ronny Turiaf 4, Sasha Vujacic 4, Jordan Farmar 2.

© 2010 Árvakur hf. Öll réttindi áskilin

Fara til baka Til baka

 

Íþróttir / Körfubolti — Fleiri fréttir

Í dag
Í gær
Þriðjudaginn 16. mars
Mánudaginn 15. mars
Sunnudaginn 14. mars
Laugardaginn 13. mars
Föstudaginn 12. mars
Fimmtudaginn 11. mars
Miðvikudaginn 10. mars
Þriðjudaginn 9. mars
Mánudaginn 8. mars