[ Fara í meginmál | Forsíða | Veftré ]
mobile Fyrir farsíma | RSS þjónusta RSS | Podcast Podcast | Minnka letur Stærð Stækka letur

Nýtt á mbl.is

Íþróttablogg

skak.is

Skák.is | 22.3.2010
Ivanchuk efstur á Amber-mótinu 
Skák.is Ivanchuk er efstur á Amber-skákmótinu að lokinni áttundu umferð sem fram fór í kvöld. Íöðru sæti, vinningi á eftir Ivanchuk, er Carlsen sem mátti sætta sig við tap ½-1½ gegn Kramnik. Gelfand og Kramnik eru í 3.-4. sæti. Grischuk er nú orðinn efstur í… Meira

Staða - Úrslit

Ísland
Önnur lönd
Það hefur hallað undan fæti hjá Thomas eftir að hann lék við hvurn sinn fingur í búningi Pistons.

Það hefur hallað undan fæti hjá Thomas eftir að hann lék við hvurn sinn fingur í búningi Pistons. mbl.is

Íþróttir | mbl.is | 27.10.2008 | 13:38

Isiah Thomas á sjúkrahús eftir sjálfsmorðstilraun

Frægðarhallarmeðlimur NBA, Isiah Thomas, var lagður inn á sjúkrahús á föstudag, en hann fannst meðvitundarlaus á heimili sínu í New York, eftir að hafa tekið inn óhóflegt magn svefntaflna. Engar upplýsingar hafa borist um heilsu hans ennþá.

Thomas, sem er 47 ára gamall, þótti einn besti leikmaður NBA-deildarinnar á níunda áratugnum, er hann lék með hinum „vondu strákunum“ í Detroit Pistons, en liðið varð NBA meistari árin 1989 og 1990, og var Thomas valinn besti leikmaður úrslitakeppninnar (MVP) sama ár.

Eftir að leikferli Thomas lauk gerðist hann þulur hjá NBC sjónvarpsstöðinni og síðar eigandi CBA áhugamannadeildarinnar, sem fór á hausinn undir hans stjórn. Hann gerðist þá  þjálfari Indiana Pacers en þótti ekki standa undir væntingum sem þjálfari, frekar en hjá New York Knicks, sem ráku hann þann 18. apríl síðastliðinn.

Þá hefur hegðun Thomas utanvallar verið þó nokkuð í sviðsljósinu og hefur hann verið ásakaður um kynferðislega áreitni í garð samstarfskonu sinnar hjá NY Knicks, auk þess sem hann samsinnsti Dennis Rodman um, að Larry Bird væri ofmetinn sökum litarhafts síns, en hann væri hvítur leikmaður í deild fullri af lituðum leikmönnum. 

© 2010 Árvakur hf. Öll réttindi áskilin

Fara til baka Til baka

 

Íþróttir / Körfubolti — Fleiri fréttir

Í dag
Í gær
Laugardaginn 20. mars
Föstudaginn 19. mars
Fimmtudaginn 18. mars
Miðvikudaginn 17. mars
Þriðjudaginn 16. mars
Mánudaginn 15. mars
Sunnudaginn 14. mars