

Dwight Howard hjá Orlando reynir að brjótast framhjá Ray Allen og Kevin Garnett hjá Boston í leiknum í nótt. Reuters
Orlando sneri blaðinu við í Boston
Orlando Magic gerði góða ferð til Boston í nótt og lagði þar lið Celtics, 96:89, í uppgjöri tveggja af bestu liða Austurdeildar NBA í körfuknattleik.
Leikmenn Boston áttu frábæran fyrri hálfleik og höfðu ellefu stiga forskot að honum loknum. Í þriðja leikhluta gerði Orlando hinsvegar útum leikinn, skoraði 36 stig gegn 11 stigum heimamanna sem áttu sér ekki viðreisnar von eftir það.
„Þetta er málið hjá okkur um þessar mundir. Einhverra hluta vegna hefur þriðji leikhlutinn verið okkur dýrkeyptur í ár. Við verðum að bæta okkur þar," sagði Kevin Garnett, hinn öflugi leikmaður Boston.
„Við spiluðum ömurlega í þriðja leikhluta. Það var eins og við hefðum ákveðið að hætta öllu sem við gerðum vel í fyrri hálfleik," sagði þjálfari Boston, Doc Rivers.
„Þetta er besti leikhluti sem liðið hefur spilað síðan ég kom hingað," sagði hinsvegar ánægður Stan van Gundy, þjálfari Orlando.
Vince Carter skoraði 20 stig fyrir Orlando og Dwight Howard skoraði 16 og tók 13 fráköst. Rajon Rondo skoraði 17 stig fyrir Boston og átti 9 stoðsendingar.
Í hinum leik næturinnar vann Toronto Raptors sigur á Sacramento Kings, 115:104. Chris Bosh skoraði 36 stig fyrir Toronto og tók 11 fráköst. Kevin Martin skoraði 24 stig fyrir Sacramento.
Til baka







Senda inn efni