Fyrsti leikur KR og Grindavíkur annan í páskum

Pavel Ermolinskij leikmaður KR.
Pavel Ermolinskij leikmaður KR. mbl.is/Ómar

Eftir að Grindavík lagði Njarðvík að velli í oddaleik liðanna í undanúrslitum Íslandsmóts karla í körfuknattleik í kvöld, 120:95 varð ljóst að það verða Grindavík og KR sem mætast í úrslitum Íslandsmótsins þetta árið.

Fyrsti úrslitaleikurinn hefst strax að kvöldi annars dags páska, eða á mánudagskvöld klukkan 19:15. Leikurinn verður á heimavelli KR í Frostaskjóli. KR hefur heimaleikjaréttinn sem deildarmeistari í Dominos-deildinni.

Vinnar þarf þrjá leiki í úrslitum til að verða Íslandsmeistari.

Úrslitaleikir KR og Grindavíkur
Mán. 21. apríl kl. 19.15: KR - Grindavík
Fös. 25. apríl kl. 19.15: Grindavík - KR
Mán. 28. apríl kl. 19.15: KR - Grindavík
Fim. 1. maí kl. 19.15: Grindavík - KR
Lau. 3. maí: KR - Grindavík

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert