„Ömurlegt að vera sóknarfrákastari“

Ómar Örn Sævarsson er einn lykilmanna í liði Grindavíkur sem er komið í úrslit Íslandsmóts karla í körfubolta gegn KR. Ómar skoraði 19 stig og tók 12 fráköst þegar Grindavík burstaði Njarðvík, 120:95 í oddaleik liðanna í undanúrslitum í Röstinni í kvöld.

Grindvíkingar áttu algjöran draumaleik þegar þeir lögðu Njarðvíkinga. „Það var eiginlega ömurlegt að vera sóknarfrákastari í þessu liði í þessum leik, því við klikkuðum varla á skotum. Það gekk eiginlega allt upp í leiknum,“ sagði Ómar þegar mbl.is ræddi við hann í kvöld í Grindavík.

Viðtalið við Ómar má sjá í heild sinni í spilaranum hér fyrir ofan.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert