Brooklyn sótti sigur til Toronto

Kevin Garnett , leikmaður Brooklyn, reynir að komast framhjá DeMar …
Kevin Garnett , leikmaður Brooklyn, reynir að komast framhjá DeMar DeRozan, leikmanni Toronto í viðureign liðanna í kvöld. AFP

Brooklyn Nets fór vel af stað í fyrsta leik sínum í úrslitakeppni NBA-deildarinnar í körfuknattleik í kvöld þegar liðið vann Toronto Raptors, 94:87, í Toronto, eftir að hafa verið 50:46 yfir í hálfleik.

Kyle Lowr skotaði 22 stig fyrir Toronto, auk þess sem hann tók sjö fráköst og átti átta stoðsendingar. Geiurs Vazquez skoraði 18 stig og átti átta stoðsendinga og Jonas Valenciunas skoraði 17 stig auk þess að ná 18 fráköstum

Joe Johnson og Deron Williams skoruðu 24 stig hvor fyrir Brooklyn. Kevin Garnet lét lítið fyrir sér fara og lék aðeins í 20 mínútur. Hann skoraði fimm stig og tók átta fráköst.

Toronto hafnaði í þriðja sæti Austurdeildarinnar en Brooklyn í sjötta sætinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert