Miami knúði fram sigur á Charlotte

Ray Allen allen hjá Miami fer framhjá Josh McRoberts hjá …
Ray Allen allen hjá Miami fer framhjá Josh McRoberts hjá Charlotte í leik liðanna í kvöld. AFP

Meistarar Miami Heat lögðu Charlotte Bobcats að velli, 99:88, í fyrsta leik liðanna í fyrstu umferð úrslitakeppni NBA-deildarinnar í körfuknattleik, eins og reiknað hafði verið með en máttu hafa mikið fyrir því að hrista gestina af sér.

Það var ekki fyrr en á lokakaflanum sem meistararnir tryggðu sér sigurinn, með því að skora 18 stig gegn 4 á stuttum tíma, og það voru þeir LeBron James og Chris Wade sem voru allt í öllu og skoruðu ríflega helming stiga þeirra. James var með 27 stig og Wade 23. Kemba Walker skoraði 20 stig fyrir Charlotte sem náði mest níu stiga forystu í leiknum og var yfir um tíma í þriðja leikhluta.

Liðin mætast aftur í Miami aðfaranótt fimmtudags en fjóra sigra þarf til að komast áfram.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert