Helgi Jónas: Eigum langt í land í sóknarleiknum

Helgi Jónas Guðfinnsson var líkast til fegnastur allra í TM-Höllinni í kvöld þegar lokaflautan gall, eftir sigur Keflavíkur á Stjörnunni í Dominos-deildinni, en hann var staðráðinn í að ná sínum fyrsta sigri sem þjálfari Keflavíkur á heimavelli sem fyrst.

Helgi kvað sitt lið hafa spilað betur í seinni hálfleik og sagði að frákastabaráttan hefði verið að plaga liðið framan af leik. Helgi sagðist hafa úr nógu að velja með hvað skyldi fara yfir á næstu vikum með sínu liðið enda ekki fengið nema sirka 2 vikur með þann mannskap sem hann hefur í dag.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert