Helgi Jónas Guðfinnsson, þjálfari körfuknattleiksliðs Keflavíkur, var nánast orðlaus þegar blaðamaður tók tal af honum eftir leik í kvöld. Hans menn höfðu þá verið gersamlega niðurlægðir á sínu eigin parketi af KR og Helgi var í raun hissa á andleysi sinna manna þetta kvöldið. Þjálfarinn vissi varla hvernig eftir leiks ræðan myndi hljóma inn í klefa með sínum piltum. Lokatölur, 90:67, fyrir KR.