Logi Gunnarsson, leikmaður Njarðvíkur, var að vonum mjög vonsvikinn eftir kvöldið þegar lið hans tapaði með naumlega gegn heimamönnum Hauka á Ásvöllum, 67:66, í Dominosdeildinni í körfuknattleik.
Logi sagði sitt lið hafa verið of hæga og lina í þessum leik og líkt og vantaði allan kraft í liðið. Eina jákvæða sem Logi sá við þennan leik var það að liðið skildi aðeins tapa með einu stigi á erfiðum útivelli eftir að hafa spila svo illa í leiknum.