Slæmt tap í Madison Square Garden

Elvar Már Friðriksson og Martin Hermannsson ásamt Hauki Pálssyni á …
Elvar Már Friðriksson og Martin Hermannsson ásamt Hauki Pálssyni á landsliðsæfingu. mbl.is/Golli

Elvar Már Friðriksson og Martin Hermannsson, landsliðsmenn í körfuknattleik, máttu þola slæmt tap í hinni sögufrægu íþróttahöll Madison Square Garden í New York í nótt.

Lið þeirra LIU Brooklyn tapaði þá fyrir Stony Brook 73:54 í efstu deild NCAA-háskóladeildarinnar. LIU var þó einungis fimm stigum undir að loknum fyrri hálfleik.

Elvar skoraði 6 stig og stal boltanum tvívegis. Martin var með 2 stig og stal boltanum einu sinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert