Íslendingaliðið Sundsvall Dragons tapaði fyrir Norrköping Dolphins í toppslag sænsku úrvalsdeildarinnar í körfuknattleik í kvöld, 118:85.
Hlynur Bæringsson skoraði tvöfalda tvennu í kvöld, en hann skoraði 11 stig og tók 11 fráköst auk þess að eiga 4 stoðsendingar. Jakob Örn Sigurðarson skoraði 10 stig, Ægir Þór Steinarsson 7 og Ragnar Nathanaelsson 2.
Norrköping náði með sigrinum tveggja stiga forskoti á Sundsvall á toppnum en Sundsvall á leik til góða. Norrköping er með 24 stig en Sundsvall 22.
Haukur Helgi Pálsson skoraði 12 stig og tók 2 fráköst fyrir LF Basket sem vann mikilvægan sigur á Borås, 88:70. Liðin eru nú bæði með 20 stig í 4.-5. sæti.