Sigrún öflug gegn Eos

Sigrún Sjöfn Ámundadóttir.
Sigrún Sjöfn Ámundadóttir. mbl.is/Golli

Sigrún Sjöfn Ámundadóttir lét mikið að sér kveða með liði Norrköping Dolphins í dag þegar það vann öruggan sigur á Eos, 69:43, í sænsku úrvalsdeildinni í körfuknattleik.

Sigrún var næststigahæst í liði Norrköping með 14 stig og tók jafnframt sex fráköst í leiknum, ásamt því að gefa eina stoðsendingu en hún spilaði í rúmar 23 mínútur. Sigurinn var aldrei í hættu en staðan var 45:21 í hálfleik.

Norrköping er í fjórða sæti deildarinnar eftir 20 umferðir með 24 stig og í harðri baráttu um að halda fjórða sætinu og ná heimaleikjarétti í úrslitakeppninni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert