Jón Arnór með 15 stig í Meistaradeildarsigri

Jón Arnór skorar 2 af 15 stigum sínum í kvöld.
Jón Arnór skorar 2 af 15 stigum sínum í kvöld. EPA

Jón Arnór Stefánsson átti mjög góðan leik fyrir Unicaja Málaga í Meistaradeild Evrópu í körfuknattleik þegar lið hans vann Anadolu Efes Istanbul 93:90 í miklum spennuleik í Málaga á Spáni.

Jón Arnór spilaði rúmar 26 mínútur, setti niður 15 stig og tók tvö fráköst en þetta var aðeins annar sigur Unicaja í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar í vetur. Liðið er áfram í neðsta sæti F-riðils.

Anadolu Efes hefur staðið sig eilítið betur, en þeir hafa unnið fjóra leiki og tapað fjórum í úrslitakeppninni og er í 4. sæti.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert