Magnað hjá Tómasi í lokin

„Þetta var magnaði hjá Tómasi í lokin,“ sagði Hrafni Kristjánsson, þjálfari karlaliðs Stjörnunnar í körfuknattleik, eftir að liðið vann Njarðvík 96:94 í fjórða leik liðanna í 8-liða úrslitum Dominosdeildar karla í gærkvöldi.

„Við vissum að þetta yrði hörku leikur alveg eins og hinir þrír. Þessi sería er búin að vera flott og hefði getað endað  með því að annað liðið hefði sópað hinu út. Við vitum að hverju við göngum í Njarðvík á fimmtudaginn og verðum tilbúnir í það verkefni,“ sagði Hrafn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert