Magnús kominn heim

Efri röð frá vinstri: Magnús Þór Gunnarsson, Valur Orri Valsson. …
Efri röð frá vinstri: Magnús Þór Gunnarsson, Valur Orri Valsson. Neðri röð frá vinstri: Sigurður Ingimundarson, Falur Harðarson formaður KKD Keflavíkur og Einar Einarsson. Ljósmynd/ Facebooksíða Keflavíkur

Magnús Þór Gunnarsson hefur ákveðið að ganga til liðs við körfuknattleikslið Keflavíkur en hann ólst upp hjá félaginu og lék með því árabil. Magnús lék Grindavík til byrja með á nýliðnu keppnistímabili en gekk síðan til liðs við Skallagrím sem féll úr deildinni. 

Auk þess þá framlengdi Valur Orri Valsson samningi sínum við Keflavík-liðið til næstu þriggja ára. Sigurður Ingimundarson verður áfram þjálfari liðsins og hefur sér til fulltingis Einar Einarsson.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert